Frítt inn á Sjóminjasafnið fyrir fullorðna í fylgd með börnum
Dagana 18.-21. febrúar verður frítt inn á Sjóminjasafnið fyrir fullorðna í fylgd með börnum í tilefni þess að nú eru vetrarfrí í mörgum skólum.
Margt verður í boði svo sem fjölskylduleiðsagnir um Varðskipið Óðinn, ratleikur og fleira.
Á safninu er margt skemmtilegt að skoða fyrir börn. Til dæmis er árabátur á efri hæðinni sem börn mega príla upp í og klæða sig í gömul sjóklæði. Á neðri hæðinni er búið að innrétt stórt herbergi sem skip og bryggju. Það er líka spennandi að fá leiðsögn um ævintýraheim varðskipsins Óðins sem liggur við bryggju fyrir utan safnið.
Kaffihús er á staðnum.
Sjá nánar um Sjóminjasafnið hér.
Mynd að ofan er fengin að láni af https://www.facebook.com/sjominjasafnid