Skip to content

Flokkur: Viðburðir

Ljósanótt í Reykjanesbæ

  Ljósanótt verður haldin í Reykjanesbæ um helgina. Ótal viðburðir og fjör í boði – sjá dagskrá hér. Á bls. 142-157 í bókinni Útivist og afþreying fyrir börn eru upplýsingar um sniðuga staði fyrir fjölskyldur til að heimsækja á Reykjanesskaga og á bls. 203 er kort af svæðinu. MInnum á að bókin fæst í Eymundsson o.fl. stöðum. 

Opið hús í Þekkingarsetri Suðurnesja á laugardaginn

Laugardaginn 30. ágúst verður opið hús hjá Þekkingarsetri Suðurnesja. Boðið verður upp á margt skemmtilegt fyrir fjölskyldur. Lifandi sjávardýr verða til sýnis fyrir gesti og þeir sem þora mega halda á þeim. Boðið verður upp á ratleik fyrir fjölskyldur um nágrenni Sandgerðisbæjar. Ratleikurinn tekur um eina klukkustund og er glaðningur í boði fyrir þá sem ná að ljúka honum. Opið verður kl. 13-17. Ókeypis aðgangur og allir velkomnir. Sjá nánar hér. Mynd að ofan er fengin að láni af heimasíðu thekkingarsetur.is Skammt frá Þekkingarsetrinu er Garðskagaviti sem ævintýralegt er að skoða.… Read more Opið hús í Þekkingarsetri Suðurnesja á laugardaginn