Laugardaginn 19. apríl verður páskaeggjaleit í skóginum við Þórisstaði. Búið verður að fela 200 páskaegg og hefst leitin kl. 13 við Súpuskálann. Einnig verður hægt að skoða dýrin á staðnum… Read more Páskaeggjaleit á Þórisstöðum →
Nú eru flestir komnir í páskafrí og sumar fjölskyldur á leiðinni í ferðalag. Það er upplagt að nota fríið og gera eitthvað skemmtilegt saman í náttúrunni. Það eru útivistarsvæði um allt land, frábær skíðasvæði, fallegar fjörur, fjöll og skógar sem gaman er að heimsækja. Einnig eru góðar sundlaugar víða um land og alltaf spennandi fyrir börn að prófa nýja laug. Þarf ekki að fara langt til að skapa skemmtilegar minningar í fríinu. Í bókinni Útivist og afþreying fyrir börn bendum við á ótal staði í Reykjavík og nágrenni sem við mælum… Read more Útivist í páskafríinu →
Það er alltaf gaman að föndra með börnum og hægt að gera margt einfalt og sniðugt. Nú styttist í páskana og því upplagt að skapa notalega stund og búa til páskaskraut.… Read more Páskaföndur fyrir börn →
Við bendum á að Klifurhúsið verður lokað um páskana. Það mun síðan á næstunni opna á nýjum stað við Ármúla: áhugasamir fylgist endilega með á heimasíðu Klifurhússins eða á facebook.
Sunnudaginn 13. apríl verður farið í ævintýralega fjöruferð á Bjarteyjarsandi í Hvalfirði. Margt verður í boði fyrir fjölskyldur svo sem fræðsla um lífríki og vistfræði fjörunnar, skimað verður eftir kræklingum í soðið og fallegum gersemum fjörunnar. Þaraeldstæði verður prófað í fyrsta skipti og þar verða soðnar kræklingaskeljar og jafnvel grjótkrabbi. Einnig verður bragðað á þara, skimað eftir hafmeyjarhári og fleira spennandi. Ferðin hefst kl. 11 og mun hún taka um 2 klst. Allir eru velkomnir og þátttaka er ókeypis. Nánari upplýsingar eru hér.
Það er spennandi fyrir börn að fara út í Viðey, sigla í ferjunni og leika í fallegri náttúru. Gaman er að ganga um eyjuna, leika í fjörunni eða á leiksvæði… Read more Páskaeggjaleit í Viðey →
Ein af okkar uppáhalds sundlaugum er Álftaneslaug. Hún er barnvæn og skemmtileg. Á staðnum er meðal annars 8 metra löng vatnsrennibraut og eina öldulaug landsins sem sér fullorðnum og börnum… Read more Álftaneslaug fyrir fjölskyldur →
Hvaleyrarvatn er yndislegur staður að fara með börn. Þar er falleg sandströnd þar sem gaman er að vaða og á góðviðrisdögum er hægt að baða sig í vatninu. Göngustígar eru… Read more Útivistarparadís við Hvaleyrarvatn →