Páskaföndur fyrir börn
Það er alltaf gaman að föndra með börnum og hægt að gera margt einfalt og sniðugt. Nú styttist í páskana og því upplagt að skapa notalega stund og búa til páskaskraut.
Við fundum þessa hugmynd að skemmtilegu og einföldu páskaskrauti sem allir ættu að geta búið til með börnum. Þarna er hægt að nýta bæði eggjaskurn og páskaunga sem eru á páskaeggjum.
Hægt er að fá fleiri hugmyndir af páskaskrauti hér .