Þrettándagleði Sólheima 2013
Hún er spennandi dagskráin fyrir þrettándann á Sólheimum 6. janúar 2013:
16,00 -17,00 Íþróttaleikhúsið. Þú þarft bara að mæta! Búningar; skikkjur og andlitsmálun fyrir alla. Þarna verða Grýla, Leppalúði, jólasveinar, álfar, tröll, huldufólk og aðrar vættir. Í hvaða gerfi ætlar þú að bregða þér!!!!
17,00 Álfakóngur og drottning leiða blysför að brennustæði. Trommuleikur, sungið og sprellað.
17,10 Kveikt í brennukesti, blys og söngur
17,30 Meiri söngur, gleði og skemmtun af sviði
Dagskráin endar með Flugeldasýningu. Að öllu þessu loknu verður síðan boðið upp á Leppalúðasúpu að hætti Sölva, nýbakað lífrænt Pami-nornabrauð á mjög foreldravænu verði. 1000- krónur fyrir fullorðna 500- krónur fyrir börn 6-12 ára, 0- krónur fyrir yngri en 6 ára, í Grænu könnunni. Brennandi heitt kakó og brakandi piparkökur verða einnig til sölu í Grænu Könnunni.
Sjá dagskrána á heimasíðu Sólheima.