Stellarium stjörnufræðiforritið
Stjörnufræðiforritið Stellarium er ókeypis og opið almenningi. Með forritinu geta börnin skoðað myndir af himninum eins og þau væru að skoða hann með berum augum eða sjónauka. Í forritinu er einnig að finna ýmsan fróðleik og hægt að læra að þekkja stjörnumerkin; Karlsvagninn (sem er hluti af Stórabirni), Litlabjörn, Drekann, Herkúles o.s.frv.
Við viljum einnig benda ykkur á Stjörnuskoðunarfélag Seltjarnarness sem hefur boðið upp á fróðleg og skemmtileg námskeið fyrir börn.