Útivistarsvæðið við Reynisvatn er sannköllum paradís
Fátt er jafn yndislegt að koma inn eftir góða útiveru. Börn þurfa að hreyfa sig reglulega til að viðhalda heilbrigðum vexti og þroska auk þess sem hreyfing eykur andlega og líkamlegt hreysti þeirra. Útivistarsvæðið við Reynisvatn er sannkölluð paradís. Börnin njóta sín í fallegri náttúru þar sem ríkir kyrrð og ró. Hægt er að ganga í kringum vatnið og leika í Sæmundarseli sem vekur alltaf lukku hjá börnum. Nánar um Reynisvatn á bls. 60.