„Veiðiferðirnar með pabba“
Fullorðinn karlmaður var beðinn um að segja frá hvaða minning úr æsku honum þætti skemmtilegust. Svarið var einfalt; „veiðiferðirnar með pabba.“ Svarið hefði getað verið einhver af fjölmörgu utanlandsferðunum með fjölskyldunni eða þegar hann fékk nýju tölvuna. Að vera í kyrrð og ró úti í náttúrunni með sínum nánustu að takast á við ævintýraleg verkefni skilur eftir sig dýrmætar minningar sem fylgja barninu út ævina.