Jólamarkaður Ásgarðs
Næstkomandi laugardag 7.desember 2013 verður haldinn hinn árlegi jólamarkaður í húsnæði Ásgarðs í Mosfellsbæ. Þar verða leikföng til sýnis og sölu. Einnig verður boðið upp á kaffi/súkkulaði og kökur gegn vægu gjaldi og listamenn gleðja gesti með jólalögum. Það er alltaf hátíðlegt að fara á svona markað og upplifa sanna jólastemningu. Sjá nánar um markaðinn á heimsíðu handverkstæðisins eða á facebook.
Staður: Álafossvegur 14 og 22 í Mosfellsbæ
Stund: Laugardagur 7.desember kl. 12:00 – 17:00
Mynd að ofan er fengin að láni af heimasíðu handverkstæðisins http://www.asgardur.is