Heyrst hefur…
…að leikkonan og orkuboltinn Nína Dögg Filippusdóttir (40) hafi notið sín með eindæmum með börnunum sínum á Bókamessunni í Ráðhúsinu um helgina. Þau munu hafa lesið upp úr nýútkomnu barnabókinni um Kalla Kalda sem er eftir föður hennar. Að sjálfsögðu heillaði Nína gesti og gangandi með tilfinningaþrungnum lestri sínum og einnig heyrðist að börnin eigi ekki langt að sækja hæfileikana.