Páskaeggjaleit í Viðey í dag
Elding býður í páskaeggjaleit í Viðey í dag laugardaginn 28. mars í samstarfi við Freyju, Viðeyjarstofu og Borgarsögusafn Reykjavíkur.
Þetta er skemmtilegur leikur fyrir alla fjölskylduna sem gengur út á það að finna sem flest lítil páskaegg frá Freyju og einnig verða stærri vinningar fyrir þá sem finna sérstaklega merkt egg.
Páskaeggjaleitin hefst kl. 13:30 við Viðeyjarstofu. Afmörkuð verða sérstök leitarsvæði, þar á meðal eitt fyrir 6 ára og yngri. Leikurinn gengur út á að „fyrstur kemur, fyrstur fær.“
Tilvalið er að taka með nesti en einnig er veitingasala í Viðeyjarstofu.
Vegna mikillar eftirspurnar í fyrra er mælst til að fólk skrái sig til leiks með því að bóka far með ferjunni.
Viðeyjarferjan siglir samkvæmt vetraráætlun um helgar.
Brottfarir frá Skarfabakka til Viðeyjar: 13:15, 14:15 og 15:15.
Brottfarir frá Viðey til Skarfabakka: 13:30, 14:30, 15:30 og 16:30.
Verð í ferjuna: Fullorðnir 1100 kr. Börn 7–15 ára 550 kr. Börn 0–6 ára 0 kr.
Sjá nánari upplýsingar á heimasíðu Viðey.
Mynd að ofan er fengin að láni af Videy.com