Skemmtilegir viðburðir fyrir fjölskyldur í Þekkingarsetri Suðurnesja
Þekkingarsetrið verður með tvo viðburði í tilefni jarðvangsviku Reykjanes jarðvangs sem haldin verður í þriðja sinn dagana 25.- 30. maí.
Miðvikudaginn 27. maí kl. 17:00 munu börn úr 7. bekk Sandgerðisskóla lesa upp úr bók Selmu Hrannar Maríudóttur, Rassaköst á Reykjanesi. Ókeypis aðgangur.
Föstudaginn 29. maí kl. 17:00 verður kveikt upp í þaragrillinu og gestum boðið upp á grillaðan krækling og fleira góðgæti úr fjörunni.
Sjá nánari upplýsingar hér
Myndir að ofan eru fengnar að láni af heimasíðunni http://thekkingarsetur.is/thekkingarsetur-sudurnesja/