Nokkur atriði sem skipta máli í útivist með börnum

photo
Nú er góður tími til að skipuleggja sumarfríið með fjölskyldunni. Það þarf ekki að fara langt til að upplifa ný ævintýri og gera fríið eftirminnilegt. Í Reykjavík og nágrenni er að finna fjölda útivistarsvæða sem gaman er að heimsækja. Það eru nokkur atriði sem skipta talsverðu máli í útivist með börnum:

1. Það er sniðugt að leyfa barninu að taka þátt í að velja staðinn. Börnum finnst til dæmis gaman að skoða myndirnar í bókinni og fá þannig tækifæri til að velja eitthvað sem þeim finnst spennandi.

2. Mikilvægt er að aðlaga ferðina að þörfum barnsins svo sem stoppa oftar og hvíla sig og muna að flýta sér hægt. Setja sér lítil markmið – eins og að ganga upp að næsta hól og hvíla sig svo. 

3. Taka með nesti og nóg að drekka. Það er svo notalegt að setjast saman niður fá sér eitthvað gott að borða. Matur smakkast betur eftir hreyfingu utandyra. Á köldum dögum er gott að taka með heitt kakó og en eitthvað svalandi á heitari dögum.

4. Klæða barnið og okkur sjálf eftir veðri. Taka jafnvel með auka fatnað, sokka og handklæði. Það er frekar fúlt að þurfa að snúa við vegna þess að manni er of kalt.

5. Gefum okkur tíma til að upplifa náttúruna með barninu. Börnum er náttúrulegt að lifa í núinu og njóta stundarinnar. Notum tækiðfærið og spjöllum við barnið um daginn og veginn. Á bls. 178-182 í bókinni Útivist og afþreying fyrir börn eru myndir af blómum og gæti verið gaman að kenna því að þekkja helstu tegundir eða fara í leik eins og hver finnur flestar blómategundirnar.

6. Muna svo að útivist er hægt að stunda allt árið. Maður klæðir sig bara eftir veðri.

Bækurnar Útivist og afrþeying fyrir börn og Reykjavik With Kids geyma ótal hugmyndir að samverustundum. 

Góða skemmtun í sumar!

Færðu inn athugasemd

Skráðu umbeðnar upplýsingar að neðan eða smelltu á smámynd til að skrá þig inn:

WordPress.com Logo

You are commenting using your WordPress.com account. Log Out /  Breyta )

Facebook photo

You are commenting using your Facebook account. Log Out /  Breyta )

Tengist við %s