Fjölskyldudagskrá í Gerðubergi sunnudaginn 3.mars kl. 14.
Í tilefni 30 ára afmælis Gerðubergs verður boðið upp upp á líflega fjölskyldudagskrá sunnudaginn 3. mars kl. 14. Það verða tvær kveðskaparsmiðjur: Krummi krunkar úti og Dans vil ég heyra. Börnum gefst kostur á að kveða og syngja íslensk lög, fara í leiki og læra um íslenska sagnadansa og lausavísur. Aðgangur er ókeypis.