Skoðum fjársjóði fjörunnar
Í dag er fallegt veður og tilvalið að fara í fjöruferð. Það er svo gaman að fá að vaða í sjónum, skoða fjársjóði fjörunnar og njóta þess að vera úti með fjölskyldunni í friðsælu og fallegu umhverfi. Börn eiga auðvelt með að lifa í núinu og njóta augnabliksins. Í fjörunni er tilvalið að njóta stundarinnar í leik og fræðslu fjarri öllu áreiti borgarinnar. Margar skemmtilegar fjörur eru í Reykjavík og nágrenni svo sem Álftanesströnd, Grótta og Fjaran við Grafarvog. Einnig bendum við á fleiri fjörur á bls. 20-29 í bókinni.