Íslenski safnadagurinn 7. júlí
Næstkomandi sunnudag verður íslenski safnadagurinn haldinn hátíðlegur. Þá bjóða mörg söfn upp á sérstaka dagskrá og verður ókeypis inn öll söfn sem taka þátt í deginum.
Sjá nánar um safnadag þeirra safna sem eru í bókinni hér: Sjómannasafn (m.a. hægt að fara í varðskipið Óðinn), Þjóðminjasafn (m.a. leiðsögn á íslenski, ensku og pólsku), Árbæjarsafn (þar verður m.a. fornbílasýning), Kjarvalstaðir og Ásmundasafn (munið eftir listasmiðjunni á Kjarvalsstöðum).