Hollustu og einföldustu kókoskúlurnar

DSC_0044 DSC_0256

Þessar kókoskúlur eru svo ljúffengar að börnin lygna aftur augunum þegar þau gæða sér á þeim í eftirmat. Við elskum sniðug og lagskipt nestisbox og þetta á myndinni fundum við á Amazon

Svona er uppskriftin nokkurn veginn:

225 g döðlur (1x poki Himneskt frá Sollu) | 250 g þurrkaðar apríkósur (1x poki Himneskt frá Sollu) | 150 g ósaltaðar kasjúhnetur (1x poki Himneskt frá Sollu) | 150 g möndlur (1x poki Himneskt frá Sollu) | 100 g haframjöl | 100 g kókosmjöl | 3 msk kókosolía (brædd í vatnsbaði) | 3 msk hnetusmjör | 4 msk hreint kakóduft. + kókosmjöl til að velta upp úr.

Allt sett í matvinnsluvél og blandað vel – börnin elska að setja hráefnið í vélina og ýta á takkann. Gæti þurft að bæta smá kókosolíu/vatni þangað til deigið hangir vel saman. Hnoðið kúlurnar í ca munnbita og veltið upp úr kókosmjölinni. Kælið og frystið etv. afgang.

 

 

Færðu inn athugasemd

Skráðu umbeðnar upplýsingar að neðan eða smelltu á smámynd til að skrá þig inn:

WordPress.com Logo

You are commenting using your WordPress.com account. Log Out /  Breyta )

Facebook photo

You are commenting using your Facebook account. Log Out /  Breyta )

Tengist við %s