Leitin að jólunum í Þjóðleikhúsinu
Sýningin Leitin að jólunum verður sýnd á aðventunni í Þjóðleikhúsinu. Hún hefur verið sýnd frá árinu 2005 við miklar vinsældir. Þetta er skemmtileg og lífleg sýning þar sem skrýtnir og skemmtilegir náungar og tveir hljóðfæraleikarar taka á móti litlum leikhúsgestum í anddyri Þjóðleikhússins. Þeir leiða börnin með leik og söng í gegnum leikhúsið og ferðast börnin inn í ævintýraveröld jólanna og sjá leikþætti um jólin í gamla daga og á okkar tímum. Aldurshópur: 2ja til 99 ára. Sjá nánar hér.
Mynd að ofan er fengin að láni af heimasíðunni leikhusid.is