Rathlaup er skemmtileg fjölskylduíþrótt – Fjölskyldudagur
Rathlaupafélagið Hekla býður gestum í rathlaup á Fjölskyldudeginum í Öskjuhlíð sunnudaginn 29.júní. Þessi skemmtilega fjölskylduíþrótt er tiltölulega ný hér hér á landi en hefur lengi verið vinsæl á Norðurlöndunum.
Þátttakendur fá kort af hlaupasvæðinu og nota það til að fara á milli stöðva sem merktar eru á kortið. Hver og einn byrjar þegar honum hentar og reynir að komast á milli staða á sem stystum tíma. Upplagt fyrir fjölskylduna að leysa þrautina saman en brautin er um 2 kílómetrar og kerrufær ef lítil börn eru með í för.
Hér er því einstakt tækifæri til að kynnast þessari skemmtilegu íþrótt sem öll fjölskyldan getur stundað saman óháð aldri.
Fyrir þá sem vilja keppa í rathlaupi þá stendur félagið fyrir ICE-O alla helgina og um morguninn á sunnudeginum.
Sjá nánar um Rathlaupafélagið heimasíðu félagsins og á facebook.