Munum eftir fuglunum
Landsmenn eru hvattir til hugsa til smáu meðbræðra sinna og ekki síst farfuglanna sem koma langt að og þurfa orku og vatn til að lifa af. Upplýsingar þessar eru fengnar af vef Fuglaverndar.
Skógarþrestir, svartþrestir og starar eru sólgnir í feitmeti eins og kjötsag og mör. Einnig éta þeir epli, perur, rúsínur og brauð blandað með matarolíu eða öðru feitmeti.
Best er að koma þessum kræsingum fyrir á fóðurpalli eða hengja upp í tré. Epli og perur er gott að skera í tvennt og stinga uppá greinarenda 1-2 metra frá jörðu.
Snjótittlingar éta einkum fræ af jörðinni. Mulið maískorn, sólblómafræ og finkukorn er í uppáhaldi hjá þeim. Snjótittlingum er frekar illa við að vera inn á milli trjáa og því er best að gefa þeim á opnu svæði eða á húsþök.
Auðnutittlingar og barrfinkur vilja einkum sólblómafræ og finkukorn. Mjög auðvelt er að venja þá á að éta úr hangandi fóðurdöllum, kornstönglum og af fóðurpöllum í trjám. Þeir éta líka finkukorn af jörðinni. Með því að hengja fóðurdalla í tré rétt utan við glugga er hægt að fylgjast vel með atferli þeirra og hafa mikla ánægju af en Fuglavernd selur eina tegund af slíkum.
Hrafnar sækja einkum í matarúrgang sem borinn er út að vetrarlagi. Hrafnarnir éta einkum kjöt og spik en næla sér einnig í brauðbita og jafnvel ávexti. Að eðlisfari eru hrafnarnir ákaflega varir um sig og hætta sér því ekki nærri húsum. Best er þess vegna að gefa þeim þar sem pláss er gott til allra átta.