Vetrarhátíð 2015
Dagana 5.- 8. febrúar verður haldin vetrarhátíð á höfuðborgarsvæðinu og taka öll sex bæjarfélögin þátt.
Á vetrarhátíðinni fær magnað myrkur að njóta sín og lýsir upp skammdegið með áhrifamiklum ljósalistaverkum og skemmtilegum uppákomum fyrir alla fjölskylduna. Fjöldi listamanna, safna og sundlauga taka þátt í að skapa einstaka stemningu í borginni.
Margt spennandi verður í boði fyrir börn svo sem vasaljósasögustundir á Borgarbókasafninu, nornasögustund í sögubílnum Æringja, draugagangur á Þjóðminjasafninu, sjóræningjaföndur og ratleikur í Sjóminjasafninu, draugagangur um dimma stíga Árbæjarsafns og snjóbrettapartý á Arnarhóli.
Safnanótt verður haldin föstudagskvöldið 6. febrúar en þá bjóða yfir 40 söfn upp á skemmtilega og fjölbreytta dagskrá kl. 20-24.
Sundlauganótt verður haldin laugardagskvöldið 7. febrúar en þá verður frítt í sund frá klukkan 20-24 í öllum sundlaugum Höfuðborgarsvæðisins.
Allir viðburðir hátíðarinnar eru gestum að kostnaðarlausu og verður frítt er í strætó á milli allra safna á safnanótt.
Einnig verður verða skemmtilegar uppákomur á hátíðinni í tengslum við Heimsdag barna.
Sjá dagskrá http://vetrarhatid.is/events
Mynd að ofan er fengin að láni af http://vetrarhatid.is