Barnaleiðsögn í Þjóðminjasafninu
Laugardaginn 7. mars kl. 14 verður boðið upp á barnaleiðsögn í Þjóðminjasafninu.
Gengið verður með börnin í gegnum grunnsýningu safnsins. Ferðalagið hefst á slóðum landnámsmanna á 9. öld og gengið í gegnum sýninguna fram til nútímans.
Ýmsir spennandi munir verða skoðaðir svo sem beinagrindur, 1000 ára gömul sverð, gamaldags leikföng og dularfullur álfapottur.
Aðgangur er ókeypis og allir velkomnir.