Námskeið í sölvatínslu fyrir fjölskyldur
Söl eru ein næringaríkasta tegund sjávarjurta sem vex hér við land og þykja hið mesta lostæti.
Laugardaginn 18. júlí mun Þekkingarsetur Suðurnesja bjóða upp á námskeið í tínslu sölva og annarra matþörunga.
Mæting er við styttuna af Geirfuglinum við Valahnjúk á Reykjanesi kl. 13.
Þátttakendur þurfa að vera í vatnsheldum skóm, helst stígvélum og gott er að hafa lekan poka til að safna í, til dæmis stigapoka.
Leiðbeinandi er Eydís Mary Jónsdóttir land- og umhverfisfræðingur.
Námskeiðið er ókeypis og allir velkomnir.
Nánari upplýsingar http://thekkingarsetur.is / https://www.facebook.com/events/695799957231813