Sirkus Íslands á Klambratúni

11357081_10153041334193727_4445801753725166215_o

Sirkus Íslands hefur verið starfræktur síðan 2007 og samanstendur af fjölbreyttum hópi hæfileikaríks fólks á ýmsum sviðum sirkuslista.

Árið 2014 var stórt ár fyrir Sirkus Íslands þar sem þeir eignuðust sitt eigið sirkustjald sem gaf þeim tækifæri til að ferðast um landið og bjóða upp skemmtilegar og líflegar sýningar fyrir fjölskyldur.

Nú hafa þeir tjaldað á Klambratúni og munu bjóða upp á líflegar sirkussýningar 9.-12. júlí og 7.-23. ágúst. Miðasalan við tjaldið er opin alla sýningardaga frá 10 og til síðustu sýningar og svo er miðasalan á http://midi.is/leikhus/1/8981/Sirkus_Islands_Reykjavik alltaf opin.

Heima er best – stóra fjölskyldusýningin

Sannkölluð sirkusupplifun fyrir alla fjölskylduna. Grippl, húlla, loftfimleikar, einhjólalistir og margt fleira.

S.I.R.K.U.S  – fjörug sýning fyrir yngstu áhorfendur

Skemmtileg og lífleg sirkusatriði úr öllum áttum og ýmsar persónur sem börnin þekkja taka þátt svo sem Spiderman, Dimmalimm prinsessa og fleiri.

Skinnsemi – sýning fyrir fullorðna

Sýningar á Klambratúni 2015
Fimmtudagur 9. júlí kl 17 Heima er best
Föstudagur 10. júlí kl.16 Heima er best (aukasýning) kl. 20 Skinnsemi, fullorðinssirkus
Laugardagur 11. júlí kl 12 Heima er best kl.16 Heima er best (aukasýning)                               kl.20 Skinnsemi, fullorðinssirkus
Sunnudagur 12. júlí kl.11 S.I.R.K.U.S. kl.14 Heima er best (aukasýning)

Staðsetningar og sýningartímar :

Sirkus íslands er með heimasíðu http://sirkusislands.is og svo eru þeir einnig með Facebooksíðu https://www.facebook.com/sirkusislands

Mynd að ofan er fengin að láni af heimasíðu Sirkus Íslands.

Færðu inn athugasemd

Skráðu umbeðnar upplýsingar að neðan eða smelltu á smámynd til að skrá þig inn:

WordPress.com Logo

You are commenting using your WordPress.com account. Log Out /  Breyta )

Facebook photo

You are commenting using your Facebook account. Log Out /  Breyta )

Tengist við %s