Ævintýrin gerast í Reykjadal

Ef þig langar að gera eitthvað nýtt og ævintýralegt með fjölskyldunni þá er Reykjadalur fyrir ofan Hveragerði  skemmtilegur staður til að heimsækja.

Í Reykjadal er mjög fallegt hverasvæði og einstök upplifun fyrir börn að fá að baða sig í heitum læk sem rennur í gengum dalinn.

Mikilvægt er að taka með sundfatnað, handklæði, nesti, góða skó og klæða börnin eftir veðri.

Það tekur um 1 klst að ganga í Reykjadal upp frá Hveragerði. Einnig er hægt að keyra Ölkelduháls og og tekur gangan þá styttri tíma eða um 30 mín.

Færðu inn athugasemd