Vertíð snjókarla er runnin upp
Núna hefur snjórinn sem við kynntumst sem börn loksins látið sjá sig. Kannski gott betur en það. Þá er bara að bretta upp ermar og sýna börnunum sköpunarhæfileikana. Kenna þeim að gera almennilegan snjókarl. Hér eru nokkrar hugmyndir til að koma okkur af stað. Fyrir þá sem eru í miklu stuði fyrir snjókarlagerð þá er snjókarlakeppni á Víðistaðatúni í Hafnafirði kl.11 í dag.