Álfaganga um jónsmessu
Á morgun þriðjudaginn 21.júní verður álfaganga á vegum Ferðafélags barnanna. Gengið verður upp að Helgufossi í Mosfellsdal og í leiðinni verður álfabyggðin í Hrafnakletti/Helguhól heimsótt. Þar verður sungið og dansað. Í för verður Júlíana Þóra Magnúsdóttir doktorsnemi í þjóðfræði við HÍ.
Lagt verður af stað kl. 16 í einkabílum frá skrifstofu FÍ, Mörkinni 6.
Þátttaka ókeypis og allir velkomnir.
Sjá nánar á http://www.ferdafelagbarnanna.is/aaetlun/nr/1608/
Mynd að ofan er fengin að láni af heimasíðu Ferðafélags barnanna