Tími er besta gjöfin til barna

Tími er besta gjöfin

Hvað hverjum og einum þykir besta gjöfin til barna sinna er vissulega einstaklingsbundið en að okkar áliti er það að gefa börnum tíma; tíma til að hlusta og heyra hvað það hefur að segja; tíma til að hjálpa því að leysa verkefni sem það er að takast á við; tíma til að hlæja saman; tíma til að kenna því að borða hollan og næringarríkan mat; tíma til að kenna þeim kurteisi og virðingu; tíma til að kenna þeim að njóta náttúrunnar og að hreyfa sig reglubundið; tíma til að gera eitthvað skemmtilegt og upplifa ný ævintýri með þeim, og síðast en ekki síst; tíma til að vera saman. Tíminn getur farið framhjá okkur ef við veitum honum ekki athygli. Tíminn er núna og hann er dýrmætur.

Færðu inn athugasemd